Þetta helsta !

dagbókin mín..

13.04.2007 19:20:09 / gunnsa

Föstudagurinn 13.apríl

 

Jæja þá er maður komin heim fyrr en venjulega. en æfingin var 3-7 í stað hálf5-hálf9 ;) því stelpurnar + vladdi og svetlana eru í DK á NM ;):D vona að þeim gangi bara sem best þar - koma svo stelpur :!:D

þær taka þetta - ef ég þekki þær rétt :haha: En nóg um þaaððð ég vaknaði bara hress í mrg enda sofnaði ég um 12 bara strax þegar ég fór uppí rúm...tók strætó og mætti í íslenskupróf úr bókinni Kleifarvatni í fyrsta tíma. það gekk bara vel svosem, held ég :)náði alla vega að klára að lesa alla bókina fyrir prófið...annað en sumir ! hahah

Svo sleppti ég náttúrufr. og fékk far heim um 12 leytið..steinrotaðist og vaknaði aftur kl.2 - hljóp í strætó og fór á æf;) Hlín var með okkur í dag sem var bara mjög fínt, fórum á tvíslá og útí gryfju að gera risa og svona - feikiskemmtilegt bara :D ingarós góð að leiðrétta mann, algjör snillingur !!

um 5 leytið fórum við smá á svampaslá, ég, annag og sæa og gerðum bara mómentin þar. Svo var ég alveg að skííta á mig að gera heljar á slánni - brúnu en gerði það nú samt :haha::haha: ánægð með það:D Ætlaði mér að geraa...svo verður maður svo fegin eftir á :8) ég gerði reyndar heljar á stóru í fyrra eða hittífyrra or some..en einhverra hluta vegna varð ég hrædd við það...:$

En pabbi sótti mig svo og keyrði mig heim, tók krakkana með sér og núna ætla ég að fara háma í mér heimatilbúna pizzu :D:D :P

kv.GunnhildurGuðjóns ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 22:45:58 / gunnsa

Þriðjudagurinn 19.febrúar..

 

Jæja þá er ég komin heim. Fékk far í skólann eins og alltaf þegar ég á að mæta kl.9. En Biggi mætir í vinnuna á sama tíma svo það er hengtugt ;) En í morgun gerðist það skemmtilega að bíllinn var rafmagnslaus ! Við ýttum honum í gang..alla leið að hraðahindruninni á leiðinni niður brekkuna :$ og það var ekkert svo erfitt skal ég segja ykkur 8) maður er svo sterkur sko :P neinei hann rann nú eiginlega alla leiðina...

En já í náttúrufr. fengum við afhentar seinustu 2 tilraunirnar sem við skiluðum inn og ég&minn hópur fékk 8,0 í báðum verkefnunum :haha: Jáp þið lásuð rétt ! Svo í dönsku var glósupróf og mér gekk barasta alveg ágætlega svona...bíst við semí einkunn þar bara.

Um 2 leytið tók ég svo strætó heim og beint í bollur sem mamma bakaði :P dugleg konan ! bakaði helling af bollum handa okkur krökkunum ;) og ég gat ekki hætt að borða þær sko og át held ég 4 eða eitthvað :P

Hálf 4 tók ég svo strætó uppí Gerplu að þjálfa hálf5-hálf6. Fór svo beint á æf. og fékk nýja Gerplugallan hjá Auði :d mjög flottur galli finnst mér. Með svona svart bak og hvíta stafi sem stendur GERPLA og skær appelsínu-rauður að framan. og svo svartar PUMA buxur bara..mjög flottur 8) líka þægilegri en sá "gamli" og viti menn ég fékk hann fríann því ég er þjálfari :haha: jáp kostur við það !

Á æf. hitaði ég sjálf upp og gerði smá þrek. Fór svo á slá og gekk ágætlega þar svo sem..3x allt og sýna. Gerði að vísu ekki allt, en gerði handahlaup án handa á gólfinu sem ég er svo hrædd við eitthvað. Held alltaf að ég geti það ekki, en ég get það samt alveg :) heheh...Svo fór ég á tvíslá og gerði 6x risarisa afstökk. Það gekk líka alveg ágætlega. Gerði svo 5x langkipp handstöðu, gat hana alltaf næstum :P þetta er að koma þessi blessaða handstaða eftir öll þessi ár ! söss..! svo gerði ég aðeins hoppseríurnar mínar á gólfinu og Irina&Svetlana sögðu að ég gerði þetta best af öllum í A-hópum :) alltaf gaman að heyra svona hrós ;)

En hvað um það...ég var að enda við að borða bolluna sem Irina gaf mér :D vá er að springa gjörsamlega. En þarf að fara klára fyrirlesturinn í Ísl. sem ég og Jói eigum að vera með á mrg...um Frigg&Freyju !!

svo ég er ætla að vinda mér í powerpoint-ið !

gunnhildurguðjónsdóttir ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.02.2007 19:31:05 / gunnsa

Sunnudagurinn 18.febrúar

Í dag vaknaði ég um 1 leytið og lá bara uppí rúmi að horfa á endursýninguna af skólahreystinu :D já ég veit þetta er grunnskólakeppni eeen það eru ógislega margir þarna úr fimleikunum - karen, fríða, yrsa, harpa, anna, sæa, binni, rakel, karen&katrín, thelma úr trompinu og margir fleiri :haha: Og stóðu þau sig öll með prýði og bara til hamingju með það ;)

en svo hringdi ég í pabba, og við fórum á hundasýningu með krökkunum í Blómavali :lol: það var fínt sko ! alls konar tegundir af hundum, ógislega sætum og litlum en svo voru þarna sumir frekar stórir svo ég kom ekkert nálægt þeim :D

eftir það langaði mig svo að flippa e-ð niðrí Gerplu og hringdi í Önnu sem var á leiðinni í afmæli á Akranesi...:$ svo ég ákvað að kíkja þangað með systkini mín og GGG var þarna á æfingu..svo var e-ð afmæli líka..en við vorum á trampó og svo fór ég á svifrá líka, skellti mér í nokkra risa ;)

en það er víst komin matur, fiskur í ofni...:$ æji hann er hollur !!

PS. Eiríkur Haukson til Finnlands :S ég veit ekki....


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.01.2007 17:43:19 / gunnsa

10.janúar 2007

nokkrir punktar um liðna daga...

  • á föstudaginn var skóli, stutt æf. og svo fórum við harpa, magga og annag á dómaranámskeiðið..sem var JÁ ekkert það létt !
  • lau. fór ég að þjálfa litlu krúttin mín og svo á trompæf.og siðar áhaldaæf. en svo um 1 leytið fórum við stelpurnar á dómaranámskeiðið (dagur2) + sæja..þá skildi maður nú aðeins meira en ekkert þaað mikið..:/
  • á lau.kvöldið fórum við dísa og gísli í afmælið til KristínUar sem var mjög gaman 0 takk fyrir boðið segi ég nú bara 0 en ætla nú ekkert að lýsa neinu hérna í smáatriðum þar sem þær inga og erna blogguðu mjög svo náið um það ! 0
  • á sunnudeginum fór ég svo á dómaran.(dagur3) kl.10 um mrg.uninn ! var DAUÐ já 00 gat nú lítið reiknað og "táknað" hahah 0
  • svoo á mán. fór ég í skólann og æf og hann kæri afi minn átti afmæli þennan dag og eru þau amma úti á Kanarí í sólinni sem þar er!! úff langar til SÓLARlanda!... en gleymdi mér algjörlega á æf. að fylgjast með klukkunni og miissti af ökutímanum sem ég hefði farið í kl.8...
  • á þri.fór ég þá í staðinn að keyra og á æf.
  • í dag var ég nú að koma heim úr skólanum, ætla að taka mér frí í fiml.sökum miikiilla harðsperra !! VÁ man bara ekki eftir svona miklum verkjum í fótum, lærum, kálfum, rassi, maga,!! úff..en svo er ég e-ð svo slöpp og ískalt alltaf..veturinn bara held ég...0

en ætla að fara fá mér snúð og vínarbrauð 0

kv.

GG


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.01.2007 01:56:55 / gunnsa

Nýtt ár - ný bloggsíða :D

2007 !

 Gleðilegt nýtt ár kæru vinir og vandamenn og takk fyrir það gamla !! ;**

jább ég ætla að byrja uppá nýtt með þessa síðu..hvernig lýst ykkur á? eru kannski allir hættir að kíkja hingað því ég blogga aldrei ? :$

en ætla að drífa mig í háttinn - morgunæfing á mrg..

gunnhildurguðjóns

 



 


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.12.2006 15:11:28 / gunnsa

Jólapróf !

jæja ákvað að skella inn einu bloggi þar sem ég er hálfnuð með jólaprófin :haha: en á móti kemur að ég á helminginn eftir :/ og þarf að sitja og læra like a monster aðra heila viku8|:(

Ég er, eins og flestir vita, búin að vera hjá ömmu og afa í prófunum..það er fínt sko :D ró og næði alla vega - snarbrjáluð börn heima :haha: ég verð hérna eitthvað lengur...líka styttra í gerpluna;)

uuu ég á sem sagt félagsfr. ensku og náttúrufræðina eftir 8| erfiðistu fögin að mínu mati..en hvað um það !

ég get nú voða lítið lært í dag (föst.) er að fara á æfingu í 4 tíma og þjálfa líka, á mrg. eru 2 sýningar hjá litlu rúsínunum mínum í G-hóp (2hópar) 2 til 5...get lært eitthvað eftir það væntanlega :$;)

En ég er farin í strætó - að þjálfa :D

-gunnhildur-


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 03:30:52 / gunnsa

5.nóvember :D

Ég á afmæli í dag :haha::haha: Orðin hvorki meira né minna en 17 ára ! pff hvað árin fljúga gjörsamlega áfram ! fyrir stuttu var maður rétt að skríða í tveggja manna tölu...:/ tsss En lífið heldur áfram þrátt fyrir það...;)

En ætla ekki að hafa þetta neitt mikið lengra - ætla að fara huga að því að fara sofa :) er heima hjá Huldu og gisti þar ... og akkurat fyrir ári - þegar ég var að verða 16 btw gisti ég líka hjá heni ! haha bara svona örlítill frlóðleiksmoli :D

En þá segi ég þetta gott í nótt,

næst á dagskrá - æfingaaksturinn !

góðanóttsofiðróttíallanóttogdreymiykkurfallega :D;*

Gunnhildur Guðjónsdóttir


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 01:18:42 / gunnsa

EndurKoma ??

Já þið lásuð rétt, ég ætla að reyna byrja aftur að blogga eins oft og ég mögulega nenni og get :) Verð nú að halda uppi minni eigin síðu ! En annars er ég á "fullu" með 3 aðrar síður..svo maður reynir 8)

En ég var að koma heim fyrir c.a viku frá Svíþjóð með fimleikakrökkunum :haha: - keppnisferð já :D öllum gekk alveg mjög vel held ég..En lið 1 frá Gerplu vann mótið :D lið 2 lennti í 6.sæti og við í 8.sæti :D:D sem er mjög gott af 14 liðum sem voru að keppa :P Ég verð bara að fara herða mig aðeins á tvíslánni !! huhumm...og slánni ! :$ vinni í því ;)

En alla vega þá þarf ég að vakna um hálf 11 í fyrramálið, fara í sturtu og svona, því ég á að mæta í sjúkraþjálfun í Spönginni kl.12 ;) en ég var að byrja í sjúkraþjálfun útaf hnénu mínu sem er nýbyrjað að vera hálf-leiðinlegt..alltaf með e-a óþarfa stingi og vont að beygja mig svona og hin segin...varð að gera e-ð í málinu svo ég fór til læknis og hann sagði að það þyrfti að fara í gegnum stutt ferli með hnéð. Sem sagt fara til sjúkraþjálfara, og undir hnénu er e-s konar tappi or some sem gerir það að verkum að það er afar erfitt fyrir blóðið að renna þar í gegn :S Já ógeðslegt dæmi !! En vona bara að ég eigi eftir að verða betri þegar ég líður sjúkraþálfunartímana ! :)

Svo eftir tímann þá ætla ég að reyna skella mér í klippingu, efast nú samt að það verði e-ð úr því, á eftir að gera svo margt þar til ég fer út. En ég er að fara til Danmerkur á þriðjudagsmorguninn :haha: með mínum yndislegu fimleikaskvísum ;) þetta verður ótrúlega skemmtileg ferð bíst ég við :D ætlum að horfa á Heimsmeistaramótið í fimleikum sem er haldið í Árósum (sem ég hef farið 3 áður):P svo maður ætti nú að kannast við sig þarna ! Við gistum í hálfgerðu sumarhúsi - en þær sem fara út eru : ég, annag, karen, auður, vilborg, sigrún og sara :haha: Hlakka svo til !! get varla beðið :D

En klukkan er orðin 1 og ég er farin aðsofa/horfa á The Polar Express :haha::haha:

-GunnhildurGuðjónsdóttir-:D

PS.Inga og ég á menningarnótt ;*


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 20:34:37 / gunnsa

hæjj

jæja ætla taka mér smá pásu !

mikið að læra og svoleiðis - er líka að vinna í síðu m. fimleikunum og vinkonum mínum þannig margt að gerasst !

bæjó :D

-gunný


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.08.2006 22:40:27 / gunnsa

hææ ;*

jæja frekar langt síðan ég bloggaði...:/

margt sem hefur gengið fyrir eins og maður segir..skólinn byrjaður og æfingarnar orðnar miklar...byrjuð að læra heima á ný, finnst ég ekki kunna það lengur, frekar skrítið líka að vera komin í 2.bekk ! tíminn alltof fljótur að líða finnst manni. En ég er sem sagt í 2.D og heitir kennarinn minn Guðný. Ágætis bekkur held ég..:P hlakka bara til fyrsta ballsins ! busaballið og svo nottlega fyrirpartýið því þá fyrst nær maður að kynnast best ;)

En ég er að passa núna hana Huldu Eir rúsínuna mína ;) var að svæfa hana svo mér hálf-leiðist núna..:$ var að tala við huldu og hún er hjá ingu ásamt ernu, rakeli og herdísi (veit ekki m. gísla) og eru þau á leiðinni í ísbíltúr :P

Morgunæfing klukkan 10 í fyrramálið, veit ekki hvort ég hreinlega geti vaknað. Búin að fara alltof seint að sofa og vakna svo eldsnemma til að mæta í strætó í skólann..og 4 tíma æfingar alla daga - mestmegnis þrek í 2 tíma svo áhöld í 2 tíma  :|   :lol: svo maður er frekar þreyttur...

Óvissuferð þjálfara á mrg líka og er mér boðið..mæting í Gerplu með útiföt klukkan 5 að ég held...veit samt ekki enn hvort ég farii...veit ekki hverjir fara heldur...ekki búin að kynna mér þetta neitt...fékk að vita þetta í gær líka.

Afmæli hjá Hörpu og Thelmu á mrg - ætla að reyna mæta í það ef ég fer ekki í óvissuferðina það er að segja...þarf þá líka að fara huga að afmælisgjöfum:$ :) er ekki með neinar hugmyndir samt..æji maður finnur eitthvað..:P

Já þá er ég aðeins búin að blogga um liðna daga og það sem er næst framundan hjá mér :D Mikið að gerast...! Auður hætt í áhalda og færði sig yfir í tromp !! :S:/ sakna hennar ýkt mikið ;* en maður sér hana nú öðru hverju í Gerpluhúsinu í mega upphitun með honum yndislega Kim :D:haha:

En ég er farin !!

Gunný ;*                                                                      


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.08.2006 20:58:13 / gunnsa

Til hamingju með afmælið ástin mín !;*

Punktar um síðustu daga....

Miðvikudagur

  • fór á mrg.æfingu 9-12
  • svo í mat til ömmu og passaði Önnu Lilju:)
  • mætti á seinni æfinguna 4-7
  • skellti mér svo til Herdísar að hitta krakkana ;) aðallega hana ERNU sem var að koma frá útlöndum !:D hún gaf mér ógeðslega flott hálsmen sem stendur gunnhildur á :P Takk Erna mín ;*
  • horfðum á Magna í Rock Star...sem komst áfram!
  • fór síðan heim að sofa - frekar slöpp og illt í hálsinum...:S:/

Fimmtudagur

  • vaknaði snemma og fór á mrg.æfingu til 1
  • hringdi í litlu systur og óskaði henni til hamingju með 9 ára afmælið ! :D:haha: orðin 9 ára skvísa ;*
  • Fór með krökkunum og pabba til ömmu og afa í afmælisveislu sem var fyrir Katrínu ;)
  • Eftir það fórum við Herdís í Kringluna að tékka á Útsölunum ! keyptum okkur boli í Vero Moda :D og ég keypti gallabuxur og jakka í Zöru :haha:
  • Gísli keyrði okkur heim og ég var GJÖRsamleGA að drepast í hálsinum og fór beint undir sæng...enda mrg.æfing daginn eftir..

Föstudagur -->

  • Þá byrjaði ballið! Fock ég vaknaði og gat varla hreyft hausinn var alveg að drepast framan á hálsinum, inní honum, aftan á og bara name it !! :S
  • sleppti því báðum æfingunum..:(
  • en varð að geta hreyft hausinn og hálsinn svo ég píndi mig framúr rúminu og drattaðist með mömmu á skiptibókamarkað að græja skólabækurnar...
  • Fórum svo í Kringluna og ég keypti brún stígvél í Vero Moda :D
  • fórum til læknis - sem sagði að ég væri mikið bólgin framan á hálsinum og rétt fyrir neðan eyrun og eitlarnir væru svakalega bólgnir. :S hann sagði síðan að ég ætti að taka mér frí frá æfingum og setti mig á Pensilín..
  • Nú ligg ég hérna að blogga eins og ég fái borgað fyrir það og að horfa á ömurlega mynd með Hilary Duff ! Skemmtilegt :/:$:frown:

en nenni ekki meiru...

Gunnsa

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.08.2006 23:31:11 / gunnsa

Þriðjudagurinn 8.ágúst !!

Jæja komiði blessuð og sæl öll sömul ! 0

Þá er verslunarmannahelginni árið 2006 lokið ! :/ vildi að ég gæti spólað til baka maður !! haha þetta var gg helgi skal ég segja ykkur 0 Samt mörgu sem mætti breyta eða réttara sagt sleppa en svona er þetta ! öllu góðu fylgir alltaf slæmt 0 guð minn...en alla vega...ég nenni eiginlega ekki að blogga neitt mikið núna..væri frekar til í að hitta ykkur öll bara spjalla um þetta 0

En já ég var nú heldur betur komin með nett fimleikafráhvarfseinkenni eftir helgina - var sukkað feitt og étið óhollan viðbjóð 0 hehe..= Útilega 0

Svo ég var frekar ánægð að komast á æfingu í morgun..en það eru byrjaðar núna svona hálfgerðar "æfingabúðir" (8.-18.ágúst). Æfum 2 á dag 3 tíma í einu og læti...:/0 Verð líka að fara koma mér í mitt fyrra form...huhumm...Vá hvað það er erfitt að byrja æfa svona allt í einu alveg brjálæðislega mikið - manni líður bara eins og einhverri pylsu að reyna hlaupa sko !! 00 úff er líka alveg að leka úr þreytu var að horfa á Stick it (fimleikamyndina) á DVD 0 klikkuð mynd ! haha gaman líka að horfa á hana Nastiu vinkonu mína..hahaha neinei segji nú bara svona - MYND af gjeellunni >

 

- En ég er þá bara farin að sofa - þarf að mæta á æfingu klukkan 9 í fyrramálið :/0

G U N N S A !


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.07.2006 15:49:41 / gunnsa

Daginn, daginn

Blee bara sunnudagur í dag :D feikimikill chilldagur..

Veit ekki alveg hvað skal gera í dag :$ en Herdís og Gísli eru akkurat búin að vera saman í 1 og hálft ár í dag :D:haha: Til hamingju með það dúllurnar mínar ;* Eigið góðan dag !!

En já ég vaknaði um hálf 12 leytið við svona 1000000 símhringingar - Irena að hringja og spurja eftir systur minni ! VÁ hún hringdi 20 sinnum án djóks ! :O haha var að verða brjál...!! :S:D

En ég drullaði mér svo bara framúr og ætlaði að fá mér eitthvað gott að borða..neinei EKKERT til að éta !:evil: haha gat morguninn ekki byrjað betur !?? svo ég varð að hjóla út í búð og keypti brauð og mjólk og sollis :P ógeðslega dugleg ;) hehe..:lol:

En klukkan fer að slá í 4 - Inga að verða búin að vinna svo kannski ég bjalli í hana á eftir :P...

En já er þetta ekki töff..? var að búa þetta til ! :D --->

Svona er að leiðast í 4 tíma :haha:

but I´m out ---

Gunný


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.07.2006 20:34:52 / gunnsa

til HAMINGJU DÚLLA !

æi sætAR (Auður og Karen)

Jæjaaaaa þá er komið að því !!! 0:haha

Til hamingju með afmælisdaginn Áwwstin mín !! 0;*

HÚN Á AFMÆLI Í DAG,

HÚN Á AFMÆLI Í DAG,

HÚN Á AFMÆLI HÚN AUÐUR,

HÚN Á AFMÆLI Í DAG !!! :d

Til hamingju aftur með 15 ára afmæli þitt Auður mín ;* 0 Eigðu rosa góðan og æðislegan dag dúlla !

með afmæliskveðju frá Íslandi,

Gunný


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.07.2006 18:44:46 / gunnsa

Föstudagur !! :D

Jæja þá er maður loksins komin heim ;) var að koma heim úr Smáralindinni en ég fór þangað eftir vinnu að kaupa mér að borða :P var að slitna úr hungri eftir ferð í Heiðmörk með krökkunum og sundferð :D haha... ég hitti svo litlu frænku mína þar hana Margréti Unni ;) algjör skvísa maður - ein að versla með vinkonu sinni haha æji dúllan :D ekki nema 11 ára ;)

En já ég er sem sagt að fara borða núna - og passa litlu frænku mína hana Huldu Eir í kvöld. kannski ég kíki svo til Kötu eftir pössunina - og hitta krakkana sem ætla að koma til hennar ;)

Svo ég er farin að étaa !+

-gunný-

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Dagsetning
10. febrúar 2012